Fjársýslan er þjónustu- og þekkingarstofnun á sviði opinberra fjármála. Stofnunin veitir ríkisaðilum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf á sviði fjármála og mannauðsmála. Fjársýslan leggur áherslu á að skapa virði fyrir viðskiptavini og greiða leið fyrir bætta þjónustu ríkisins.
Ríkisreikningur
Upplýsingavefur sem birtir fróðleik um rekstur og mannauð ríkisins.
Mannauðstorg
Á Mannauðstorgi ríkisins er að finna upplýsingar og leiðbeiningar um mannauðs- og launamál hjá ríkinu.
Opnir reikningar
Á vefnum er unnt að skoða upplýsingar um greidda reikninga ráðuneyta og ríkisaðila úr bókhaldi ríkisins.
Fréttir og tilkynningar
Undirbúningur útboðs á vakta- og viðverukerfum fyrir A-hluta stofnanir ríkissjóðs
Fjársýslan og Ríkiskaup undirbúa nú útboð á vakta- og viðverukerfum fyrir A-hluta stofnanir ríkissjóðs. Markmiðið með útboðinu er að ná fram auknu hagræði í vinnuskipulagi og stjórnun tíma starfsfólks með innleiðingu nútímalegra lausna sem henta starfsemi hverrar stofnunar.
Launamiðar 2024 vegna ársins 2023
Nú á uppfærslu launamiðaforritsins að vera lokið þannig að hægt er að hefja launamiðavinnsluna.