Orri hefur verið uppfærður í útgáfu 12.1.3 og er nú aðgengilegur
Orri hefur verið uppfærður í útgáfu 12.1.3 í flestum tilfellum er viðmót og virkni óbreytt.
Æskilegt er að hreinsa skrár sem liggja á tölvum notenda það er gert með eftirfarandi hætti Internet Explorer:
- Í skipanarönd er smellt á Tools eða tannhjólið og síðan Internet Options
- Smellt á "Delete..." hnappinn
- Hakað við amk. "Temporary Internet files", Cookies og "Form data"
- Smellið á "Delete" hnappinn síðan á "Ok" annars bara á OK
Firefox:
- Tools -> Clear Recent History -> Velja "Everything"
- Hakið við allt nema Stillingar vefsvæðis
- Smellið á "OK"
Firefox á íslensku:
- Smellið á Verkfæri í skipanaröndinni
- Smellið á Hreinsa nýlega ferla
- vejið Allt í tímabil sem á að hreinsa
- Setjið hak við alla reiti nema stillingar vefsvæðis
- Smellið á Hreinsa núna
Java: Allir sem nota eitthvað meira en sjálfsafgreiðslu og vinnustund þurfa að framkvæma eftirfarandi:
Í Windows:
- Start -> Control Panel -> Java Ath ef (JAVA kaffibollinn) kemur ekki fram í Control Panel þá þarf að smella á Switch to Classic View vinstra megin í glugganum. Ef þið hafið ekki aðgang að Control panel þá þarf að fá aðstoð hjá þeim sem rekur tölvukerfin.
- Smellið á Settings
- Smellið á “Delete files” hnappinn, hafið hakið við alla reiti og smellið á OK .