Á DÖFINNI
 
SMÞMFFL
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
<<<  september  >>>
 

Innheimtukerfi ríkisins: TBR


Lýsing á prentvænu formi (PDF 107K)


TBR er innheimtukerfi ríkisins, upplýsingakerfi þar sem haldið er utan um innheimtu skatta og gjalda fyrir hönd ríkissjóðs, ríkisstofnana og annarra opinberra aðila. Jafnframt er í kerfinu sjálfvirk bókun vegna bókhaldsskila.
TBR berast innheimtukröfur frá fjölmörgum opinberum álagningarkerfum. Helstu flokkar innheimtukrafna eru skattar og önnur lögboðin gjöld ríkis (ríkissjóðstekjur) og sveitarfélaga (tekjustofnar sveitarfélaga) ásamt ýmsum gjöldum opinberra stofnana (sértekjur stofnana).

Fyrstu hlutar TBR voru teknir í notkun árið 1999. Kerfið leysir af hólmi eldra kerfi, TBI sem er frá árinu 1981 og mun verða rekið áfram vegna eldri innheimtumála þar til óhætt þykir að leggja það alfarið niður.

TBR kerfið er sívinnslukerfi á landsvísu, m.ö.o. allir notendur geta séð upplýsingar frá hver öðrum því sem næst á rauntíma miðað við tiltekna aðgangsstýringu. Það samanstendur af níu hlutum eða undirkerfum og hvert um sig er byggt utan um afmarkaða verkþætti:

Skammstöfun         Kerfisheiti
 
 TBR-Á                     Álagningarkerfi TBR
 TBR-Vi                    Viðskiptamannakerfi TBR
 TBR-G                     Greiðslukerfi TBR
 TBR-Bg                   Bankagreiðslukerfi TBR
 TBR-I                      Innheimtukerfi TBR
 TBR-B                     Bókhaldsskilakerfi TBR
 TBR-Va                   Vanskilakerfi TBR
 TBR-S                     Stýringakerfi TBR
 TBR-L                     Aðgangskerfi TBR


Meginkröfur
sem gerðar eru til TBR eru eftirfarandi: 

Að halda með heildstæðum hætti utan um álagningu, innheimtu og afskrift tekjuliða fyrir ríkissjóð og aðra opinbera aðila 

Að halda utan um allar færslur, aðgerðir og athugasemdir sem tengjast innheimtunni og tryggja rekjanleika mála 

Að sjá um einstakar vinnslur varðandi framkvæmd álagningar, innheimtu, bókunar og bókhaldsskila 

Að vinna úr og veita upplýsingar til notenda kerfisins, ráðuneyta, stjórnsýslustofnana og sveitarfélaga 


Notendur TBR
er að finna um allt land og má skipta í fimm hópa eftir ábyrgðarsviðum:

Umsjónarmenn álagningar/álagningarkerfi: Tollstjórar, Ríkisskattstjóri, skattstofur, Yfirskattanefnd, lögregluembætti, Ríkislögreglustjóri og Fangelsismálastofnun. 

Innheimtumenn ríkissjóðs:
Tollstjórinn í Reykjavík, sýslumannsembættin og Lögreglustjórinn í Reykjavík.

Eftirlitsaðilar:
Ríkisendurskoðun, Fjármálaráðuneyti, Fjársýsla ríkisins, Skattrannsóknarstjóri, Ríkisskattstjóri og Tollstjórinn í Reykjavík.

Stofnanir með innheimtu sértekna í TBR:
Landspítali - Háskólasjúkrahús, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Hollustuvernd ríkisins, Yfirdýralæknir, Vinnueftirlit ríkisins, Geislavarnir ríkisins, o.fl. 

Umsjónar- og rekstraraðilar kerfisins:
Fjársýsla ríkisins í samstarfi við Skýrr hf.


Í TBR
er unnið með gjaldflokka (t.d. FG: fasteignagjöld, AB: þinggjöld, BK: bifreiðagjöld, o.s.frv.) á gjaldanda (þ.e. pr. kennitölu) á gjaldgrunn (t.d. eignanúmer, málsnúmer, o.fl.) á tímabil, ásamt innheimtu- og álagningartegundum innan hvers gjaldflokks og eru hinar eiginlegu gjaldtegundir sem hver um sig fasttengist síðan tiltekinni tegund í tegundalykli aðalbókhalds ríkisins. Þessi "bókunartenging" gerir það að verkum að um leið og hreyfing á sér stað (álagning, greiðsla, breyting, skuldajöfnun, o.s.frv.) á tiltekinni álagningar- eða innheimtutegund í TBR er hreyfingin um leið bókfærð á tiltekna tegund í tegundalykli aðalbókhaldsins.


Fjöldi gjaldflokka í TBR
er nú um það bil níutíu talsins en innheimtu- og álagningartegundir skipta hundruðum. Allar innheimtutegundir í TBR eru tengdar ákveðnum Rétthafa, þ.e. þeim aðila er rétt hefur skv. lögum eða reglugerð með stoð í lögum að fá andvirði viðkomandi innheimtukröfu til sín. Í flestum tilfellum er rétthafinn ríkissjóður. Vegna sértekna stofnana og innheimtu fyrir sveitarfélög er rétthafinn viðkomandi stofnun eða sveitarfélag. Umsjónarmenn eru þeir aðilar er falin hefur verið umsjón með viðkomandi kröfu.


Innheimtuábyrgð kröfu
verður til við álagningu skatts eða gjalds og er aldrei flutt milli innheimtumanna nema í undantekningartilfellum, t.d. þegar um ákveðna gjaldflokka sekta er að ræða. Innheimtuábyrgðin helst m.ö.o. hjá sama aðila þar til viðkomandi innheimtukrafa hefur verið gerð upp, t.d. með greiðslu, skuldajöfnun, leiðréttingu, niðurfellingu eða með afskrift. Framkvæmdaaðilar eru þeir nefndir er skrá fjárhagsfærslur af einum eða öðrum toga í TBR en Aðgerðaraðilar þeir er skrá færslur af öðrum toga, rafrænt eða handvirkt, þ.e. ábendingar, tilkynningar, niðurstöður, o.þ.h. t.d. um póstsendingar greiðsluáskorana, lokunaraðgerðir, fjárnám og nauðungarsölu, o.s.frv. Rétthafar hafa fimm sæta kóda í kerfum TBR, umsjónarmenn og framkvæmdaaðilar fjögurra sæta kóda en auðkenni aðgerðaraðila er notendanúmer. Lista yfir þessa aðila er að finna í viðskiptamannakerfi TBR, TBR-Vi.


TBR kerfin hafa samskipti við eftirfarandi landskrár:

Þjóðskrá
Utangarðsskrá
Fyrirtækjaskrá
Skipaskrá
Ökutækjaskrá
Landsskrá fasteigna


Önnur kerfi sem TBR hefur samskipti við eru t.d.:

Tollakerfi
Álagningarkerfi RSK vegna þinggjalda og útsvars
Álagningarkerfi RSK vegna þungaskatts og bifreiðagjalds, Trukkur
VSK-kerfi RSK
Bótakerfi RSK
Málaskrá lögreglu
Málaskrá héraðsdómstóla
Aðfarargerðarkerfi sýslumanna
Fullnustuskrá Fangelsismálastofnunar
Forsendukerfi innheimtugagna
Innheimtuskilakerfi
Tékkaeftirlitskerfi
Launakerfi
Fasteignakerfi vegna ál. fasteignagjalda
Þinglýsingakerfi
FAKTA, geymslukerfi o.fl.

Lýsing á prentvænu formi (PDF 107K)