TEGUNDALYKILL RÍKISINS


 Tegundalykill ríkisins

Tegundalyklinum er ætlað að greina eðli gjalda og tekna, sundurliða eigna- og skuldaliði eftir ákvæðum um reikningsskilavenjur í lögum og jafnframt samkvæmt sérþörfum ríkisaðila.
Tegundasundurliðun hefur ákveðið gildi við mat á þróun tekna og gjalda milli ára, t.d. við samanburð á áætlunum fyrir einstök verkefni/deildir, stofnanir svo og ríkissjóð í heild.

Fjögur fremstu sætin i lyklninum eru bundin þeim númerum og texta sem fram kemur í lyklinum. Öðrum en Fjársýslu ríkisins, bókhaldssvið, er óheimilt að breyta númerum og texta í lyklinum. Fimmta sæti tegunda fyrir gjöld og tekjur er ætlað til aðgreiningar á virðisaukaskatti, 0 í fimmta sæti = 24,5% vsk,  2 í fimmta sæti = 0% vsk, 3 í fimmta sæti = 7% vsk og 8 í fimmta sæti = sérstök vsk-meðferð.

Tegundalykill með skýringum, grunnlykill, efnahagur, tekjur og gjöld

 Tegundalykill með skýringum

Sérstakur tegundalykill fyrir gjöld hefur verið útbúinn á Excel-formi. Lykillinn er ekki tæmandi en hann er tviskiptur, raðað í stafrófsröð og númeraröð, sjá flipa (Sheet) neðst í skjalinu.

Tegundalykill gjalda