Sóknargjald vegna 2009 (Excel skjal)
Sóknargjald vegna 2008 (Excel skjal)
Samkvæmt bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins var sóknargjald ársins 2007 ákveðið þannig: Sóknargjald pr. einstakling er kr. 791 á mánuði eða kr. 9.492 á ári samanborið við kr. 720 eða kr. 8.640 á árinu 2006.
Uppgjör niður á einstakar sóknir og trúfélög birtast hér fyrir neðan.
Sóknargjald vegna 2007 (Excel skjal)
Kirkjugarðaráð hefur lokið uppgjöri sínu vegna ársins 2007.
http://www.gardur.is/2007/
http://www.gardur.is/2006/
Sóknargjöld eru greidd út 15. hvers mánaðar vegna hlutdeildar í tekjuskatti næsta mánaðar á undan. Sóknargjöld sem greidd eru 15. janúar eru því vegna hlutdeildar í tekjuskatti desembermánaðar.
Greiðsla á sóknargjöldum er ákvörðuð skv. 2. gr. l. nr. 91/1987 um sóknargjöld o.fl. og er reiknuð þannig að fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári er greitt ákveðið gjald.
Sóknargjald tekur breytingum milli ára til samræmis við þá hækkun sem verður á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga á öllu landinu milli næstliðinna ára á undan gjaldári. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið ákvarðar fjárhæð sóknargjalds.
Sóknargjald er greitt inn á bankareikning viðkomandi sóknar. Breytingar á núverandi bankareikningi skal senda skriflega til Fjársýslu ríkisins. Fram skal koma á beiðninni kennitala viðkomandi sóknar og bankaupplýsingar, banki-hb-reikningsnr. Greiðslur eru aðeins lagðar inn á reikninga sem eru á kennitölu viðkomandi sóknar.
Sóknargjald vegna 2007
Sóknargjald vegna 2006
Sóknargjöld vegna 2005 (Excel - 344 k)
Sóknargjöld 2004 (Excel - 206 k)
Kirkjugarðsgjöld. Greiðsla á kirkjugarðsgjöldum er ákvörðuð skv. lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 með síðari breytingum. Kirkjugarðsgjöld eru greidd út 15. hvers mánaðar. Frá og með 1. janúar 2005 eru tekjur kirkjugarða byggðar á stærð grafarsvæða og fjölda jarðsetninga.
Framlagi ríkisins er skipt í þrennt:
Vægi umhirðu og fasts kostnaðar í útgjöldum er um 80 %
Vægi grafartöku og breytilegs kostnaðar í útgjöldum er um 18 %
Vægi líkbrennslu í útgjöldum (bálstofa KGRP) er 2 %
Kirkjugarðasamband Íslands greiðir framlag ríkisins skv. sérstöku
útdeilingarlíkani sem Kirkjugarðaráð útbýr.
Breytingar á núverandi bankareikningi skal senda skriflega til
Kirkjugarðasambands Íslands helgah@kirkjugardar.is
. Fram skal koma á beiðninni kennitala
viðkomandi kirkjugarðs og bankaupplýsingar, banki-hb-reikningsnr.
Greiðslur eru aðeins lagðar inn á reikninga sem eru á kennitölu
viðkomandi kirkjugarðs.
Kirkjugarðsgjöld vegna 2005 (Excel - 220 k)
Kirkjugarðsgjöld 2004 (Excel - 113 k)