Ágæti Orra notandi.
Samhliða innleiðingu og uppfærslu á nýrri útgáfu af (R12) Orra hefur FJS sett upp notendasíðu. Hér er hægt að nálgast upplýsingar um það helsta sem tengist innleiðingunni þ.m.t. er lýsing á helstu breytingum á kerfum, upplýsingar um hvert notendur geta snúið sér þurfu þeir aðstoð, námskeið samhliða innleiðingu o.fl.
Stutt lýsing á helstu breytingum á kerfum (smellið á nafn kerfis til að fá frekari uppl.)
Afstemming, Birgða-,innheimtu og sölukerfi, Eignir, Fjárhagur, Framleiðsla, Ferðauppgjör, Fræðslukerfi, Innkaupakerfi, Innkaupavefur, Launakerfi, OIE, Ráðningakerfi, Starfsmannakerfi, Verkbókhald, Viðskiptaskuldir, Viðskiptakröfur, Vinnustund,
Öryggi
Nú skipta há og lágstafir máli í leyniorðum, ath að notaðir hafa verið lágstafir þegar leyniorð voru stofnuð. Hægt verður að sækja um nýtt leyniorð rafrænt (ath. hvar??)
Tímaáætlun
Gert er ráð fyrir því að Orra verði lokað kl. 19:00 fimmtudaginn 30.09.2010 en opnað aftur fyrir almenna notkun þriðjudaginn 5.10.2010.
Upplýsingar um notendaaðstoð á meðan innleiðingu stendur
Þjónustuver Skýrr tekur á móti fyrirspurnum og ábendingum vegna GL, AR og AP í síma 569-5112 eða á netfangið hjalp@skyrr.is. Fyrstu 20 mínútur gegnum síma eru gjaldfríar.
Fjársýsla ríkisins tekur á móti fyrirspurnum um launa og starfsmannakerfi í síma 545-7500 eða á tölvupóst laun@fjs.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir gegnum tölvupóst vegna allra kerfa á netfangið hjalp@fjs.is
Námskeið, kennsluefni og tilkynningar
Svokallaðar vinnubúðir verða í boði fyrir notendur fyrstu 10 dagana í húsakynnum Skýrr þar sem sérfræðingar frá FJS og Skýrr verða notendum til aðstoðar. Sjá nánari uppl. og skráningu(?) neðst á síðunni Fjársýslan kemur áríðandi skilaboðum áleiðis til notenda í gegnum skráningarglugga Orra þegar notendur skrá sig inn. Einnig munu tilkynningar berast á þessa síðu undir „tilkynningar” hér neðst á síðunni. Hönnuð hafa verið stutt en markviss vefnámskeið í hverju kerfi fyrir sig og geta notendur skoðað aðgerðir sem hafa breyst með tilkomu nýrrar uppfærslu. Hægt er að hlaða námskeiðin niður á eigin tölvu gegnum tengil hér neðst á síðunni??